08nóvember
Dag
Er þokkalegur bara... farinn á fullt í linetraining í fyrirtækinu, flýg býsna mikið og mikið að læra, margt nýtt en skemmtilegt..
Fljúgum aðallega útá 2 palla einn sem heitir SIRI og annar sem heitir South Arne, þetta eru ca 2 tíma túrar í senn, og ekki besti tíminn fyrir mig að byrja núna, haust skítaveður með sudda og lágum skýjum, þannig að maður þarf að dusta rykið að blindflugsreglum og öðru, þetta gengur bara vel held ég..
Ég fór í túr um daginn með áhöfn skips sem þurfti að komast útá sitt skip útí ballarhafi, það var mikill túr með mörgum stoppum ogfl, sérstakt að lenda á stefni skipsins og finna hreyfingarnar upp og niður meðan maður sat í þyrlunni. gaman að því. Síðan er magnað að yfirleitt er skýað út frá Esbjerg og suddi, en þegar við komum uppí ca 3000´ þá er heiðskýrt og sól 
Þetta er krefjandi en skemmtilegur tími núna..
Annars gengur allt vel, allir frískir og passlega frekir svona hehe
sólong dancopter871
16október
Daginn..
Er búinn að vera iðinn maður, sem er gott bara, manni leiðist þá ekki á meðan.
Á þriðjudaginn var fór ég minn fyrsta túr offshore með fólk, mætti kl 10 og fór yfir túrinn með flugstjóranum mínum. kl 11:30 vorum við mættir útí þyrlu, en flugið átti að vera 11:45.. inn komu 9 pax eins og það er kallað og ég startaði græjunni upp og gerði öll þau tékk sem þurfa, auðvitað með aðstoð hans. Svo fórum við að stað.. gaman að því bara..
Við flugum útá borpall sem kallast SIRI og þar var fuel stop, allir farþegar út meðan við fengum fuel, tókum 300lítra. Þegar það var búið komu allir farþegar inn aftur og við héldum áfram leið okkar á annan pall sem var þeirra áfangastaður og heitir South Arne. Útá SIRI var ca 1klst flug og á milli SIRI og south Arne var ca 17min flugtími, þar var svo lent og út farþegarnir. Síðan komu aðrir farþegar inn sem voru að fara í frí 8 pax, við fengum risa matarkassa fyrir heimferðina

Svona er það víst alltaf. Það var síðan um 1.klst flug heim til Esbjerg..
Skemmtileg reynsla þetta, og ekki sú síðasta..
Síðan hérna heima er brjálað að gera, mála, rífa niður veggi, smíða veggi, parkettleggja ofl.. Erum að gera risa stelpuherbergi fyrir mínar 3.stelpur..
Jæja nóg í bili
08október
Dag....
Jú bloggfærsla...
Helst í fréttum er það að ég er byrjaður að vinna í Dancopter!! byrjaði 1.ok, ekki verið með fasta vinnu í 3.ár!!! alveg kominn tími á það enda með stóra fjölskyldu.
Ég er búinn að fara tvisvar i Danc. og fljúga eina 3 tíma í græjunni, þetta er aðeins meiri munnfylli heldur en litla R22, mikið að læra, en er mjög gaman, kallinn kominn í fluggalla með strípum á öxlunum og nafnskilti!! bara búinn að vinna að þessu í 3.ár og er mega sáttur

Síðasti mánuður fór aðallega í að fljúga á R22, en flaug 80 tíma á 4.vikum!! jú þetta var bara skemmtilegt, flaug um allt land með kaffibrúsann í farþegasætinu, lenti á grasvöllum með Gratis lendingu og drakk bolla með rótor í gangi, hvað vill maður meira?
Maður fylgist jú grant með fjármálaveseninu á landi ísa, og þvílíkt andskotans ástand það..
Ég get sagt ykkur það að ég er mjög sáttur við að búa hér í augnablikinu.
Annars, ég er góður og þið vonandi líka...
meira næst..
16september
reynum aftur... andskotans drasl
Hér er allt í góðu, litla Sverrisdóttir er yndisleg, sefur mikið ennþá, og þegar vakandi brosir hún til mann og gerir mann stoltann!!
Hin börnin una sér vel í sínum leikskólum og skóla, eru bara ánægð.
Ég leigði mér eina nýja Robinson 22 þyrlu af félaga mínum í einn mánuð til að klára mína tíma. skila henni í næstu viku, og þá er ég klár í slaginn hjá Dancopter, about time!!! en ég er þó aðeins búinn að koma þangað svona til að halda mér við...Hlakka mikið til..
í mínum flugtúr í dag fór ég að hugsa um okkur bræðurna... við sem að lékur okkur í gamla daga í sandkassanum, fórum í hjólakeppnir í Reykjadal, keyrðum dráttarvélar, gáfum kúm og rollum, köstuðum pílum í myndina af Fúsa hehe
og margt fleira, við erum svona einskonar landkönnuðir í Danmörku, hann keyrir sinn lastbíl þvert og endilegt um Danmörk jafnvel Svíþjóð, snakkar við tallausa dani, sönderjuða, norðurjuða, fýnsbúa og önnur kvikindi... Ég flýg hér um allt kolvitlaus og snakka dönsku við flugumferðastjórn og aðra sveitalúða sem eru með lítinn flugvöll sem selur 100LL... Eftir þetta verðum við bræðurnir titlaðir Danskir Landfræðingar með íslenskan ríkisborgararétt.. Svo maður minnist nú á það þá vita danir ekki rassgat um ísland. sumir halda jafnvel að Ísland sé enn undir stjórn Danmerkur !! hvernig finnst ykkur það?. Vona að tölvutuxxxan sletti þetta ekki...
kveðja
pílukastarinn
16september
Helvítis tölvukvikindi......
Var búinn að skrifa heillangt blogg síðan bara gerði tölvan sér lítið fyrir og tók málin í sínar hendur, eyddi bara draslinu og getur ekki einu sinni skammast sín.... fari hún bara til fjandans.
11ágúst
Já, það fæddist lítil prinsessa í dag kl 00:20, rétt eftir miðnætti! 3600grömm og 53cm
Við erum ægileg glöð, alltaf gaman að fá barn í heiminn, hún er yndisleg, sefur vært, og er vær, liggur og skoðar mann

maður fyllist bara af stolti, en þessi stúlka er nr. 3 í röðinni... sumir segja að ég geti ekki eignast strák hehe,
aldrei að vita!! Neinei, ekki fleiri börn, 4 er nóg hehe
Minibus?
Kveðja Sveppi pilot í skýjunum...
29júlí
Já, lifandi
Hér er sól og alltof heitt, úff, í dag fór mælirinn í 33 stig hérna...
Hef það bara fínt, er að reyna að fljúga upp einhverja tíma.
Konan er að fara að eiga, nánar tiltekið sett á í dag 29!!!
Bráðum 4.barna faðir hehe, svona á að gera það
Læt vita þegar það er orðið!!
sæl að sinni þið þarna, afsakið lélega blogg nennu!!
24júní
Já ég er á lífi, afspyrnu lélegur í bloggi þessa dagana......
Búinn að vera að fljúga Robba tuttuguogtveimur um Danmörk... Sinna fjölskyldunni eins og gengur...
Viktor sonur minn á afmæli á morgun 25. verður 8.ára drengurinn, Til hamingju með það Viktor minn!!
Mamma og Pabbi ætla að kíkja í mat, kannski bara ég grilli hammara?
í gær og í dag var ég á námskeiði í gegnum vinnuna mína, Basic offshore safety course, smá skyndihjálp, brunanámskeið, og var síðan í "sjónum" í dag, en það er snilldar sundlaug þarna, með öldugangi og látum. Vorum í dag á æfingu í flotgöllum, að æfa evacuation frá oil platform. Magnaðar græjur sem þeir eru með þarna. Á morgun tek ég síðan HUET námskeiðið, (helicopter underwater escape training) okkur verður dýft niður í vatnið í svokallaðri þyrlu, þurfum síðan að koma okkur útúr flakinu á sem stystum tíma!! það verður spennandi

Semsagt, allt í góðum gír..... Og ef einhverjum langaði í smá þyrlutúr hérna í Dk, bara hringja í mig!!!
over and out
29maí
Góðir hálsar....
Er heima að hygge núna, í fyrradag flaug ég mína fyrstu 2 tíma í EC155, bara gaman, svolítið annað en Robbi 22, gaman að því. Flaug við Esbjerg flugvöll nokkra hringi í sól og hita.
Í gærkveldi flaug ég svo 1 tíma í Esbjerg til að klára endanlega mína typerating´u.
Þannig að núna er ég kominn með réttindin í skírteinið á EC155 og Multi engine IR.. stór áfangi það

Í augnablikinu er ég bara að njóta sólarinnar með familíunni heima, sandurinn kominn í sandkassan og stelpurnar njóta sín þar..
Kaffið heitt í bollanum og ég segi bless að sinni.
Pilot
16maí
Jú,
Ég náði prófinu í dag í Frakklandinu!!!!
Hrikalega sáttur, Multi Engine IR og Typerating on the EC155....
Takk fyrir það, heim á morgun, Ölllari í kverkar núna..
Kveðja til ykkar
The Pilot